MARKÞJÁLFUN (frá hausti 2020)
Markþjálfun greinir þína stöðu og mótar bestu viðbrögð
Markþjálfun hjá Framför er samstarfsverkefni þar sem þú getur fengið aðstoð við að finna þína leið eftir að þú greinist með krabbamein eða hvernig þú getur best mótað þín eigin viðbrögð eftir meðferð.
Að vinna með markþjálfa er eins og að vinna með íþróttaþjálfara. Hann aðstoðar þig við að greina þá þætti sem þú þarft í verkefnið, vinnur með þér að því að setja upp aðgerðaráætlun, hvetur þig á leiðinni og hjálpar þér að ná framförum.
Margir eiga erfitt með að taka fréttum um greiningu á krabbameini. Þá þarf að endurskoða allt lífið og móta gagnvart sjálfum sér hvernig eigi að taka á þessu. Viðfangsefni markþjálfara er að losa um þetta og til þess notar hann ákveðna tækni og sérhæfða aðferðarfræði. Markþjálfi vinnur með þér í þessu og finnur með þér þína bestu leið til að takast á við þetta.
NBI hugsniðsgreining- og persónugreining
Framför býður upp á NBI greiningu á netinu, en slík greining gefur þér vísbendingu um þinn karakter. Þessa greiningar getur þú síðan nota til að meta þína styrkleika til að takast á við þín verkefni í lífinu. NBI persónugreiningin getur skapað þér áhugaverða sjálfskoðun og nýja sýn á sjálfan þig, hvað þú getur og hvað þig langar að gera í lífinu.
Það hvernig þú hugsar, bregst við öðrum, tekur ákvarðanir og átt samskipti getur skipt öllu máli þegar þú færð erfið verkefni í lífinu - það veltur allt á því hvernig við hugsum. NBI greining og markþjálfun sem byggir á henni getur skapað þér öfluga leið til að átta þig á þínum styrkleikum til að eiga við þau verkefni sem þú stendur frammi fyrir.